Meistari Bruce Campbell mættur og leikur hann einstaklega missheppnaða útgáfu af sjálfum sér sem býr í hjólhýsi, og er að leika í framhaldi af mynd sem heitir Alien Cave 2 og er þá augljóslega verið að gera gis af myndina sem hann lék í 2005 Alien Apocalypse. Allt er að fara að annan endan greinilegt að þetta hefur verið áður en hann fékk hlutverk í Burn notice. Honum er síðan rænt af einnhverjum goth ungling sem er hans Numero uno fan. Tekur hann Bruce til smábæjar sem heitir Gold lick, en þessi goth unglingur er víst búinn að vekja japanskan stríðsguð sem gengur um allt og afhausar þorpsbúa.
Ted Raimi er í þessari mynd en og aftur og leikur hann 3 hlutverk. Verð að segja að hann er einstaklega ófyndinn og lélegur í þeim öllum. Bruce er mjög skondinn og tekur sig ekki alvarlega. Enda gerir þessi mynd mikið grín af B myndum en á samatíma veit hún það sjálf að hennar fyrsti og seinansti áfanga staður er videoleigan.
Brandararnir í þessari mynd eru ekkert sem maður hlær upphátt af meira svona glott.
Goreið er líka mjög cheap og alltaf þegar einnhver er drepinn hefur maður á tilfinninguna að sé verið að afhausa sömu brúðuna aftur og aftur. Sem reyndar gefur þessu sinn eigin sjarma.
Nektin er enginn í þessari mynd sem er mjög lélegt en aftur á móti er aðal mótleikona bruce með huge ass brjóst.
Í heildina er þetta bara mynd fyrir þá sem fíla Bruce Campbell og eiginlega enga aðra því þeir myndu bara finnast þetta sorp
40% af 100%
No comments:
Post a Comment