Monday, December 8, 2008

Viska frá meistaranum.



hmm já ég veit hvað hann á við.

Þjófnaður ársins.

Það er alveg augljóst að það er kreppa. Menn byrjaður að stela hverju sem er !
Verða menn samt ekki að draga mörkinn einnhverstaðar ?
Ég meina þegar menn er byrjaðir að stela 200 diskum af

"Þú ert frábær" sjálfshjálpunar diskur í anda The Secrets.
Eftir enga aðra en aðal kyntákn okkar íslendinga SIGGU KLING.

Hérna er fréttin á visir.is
Skemmtilegt að segja frá því að þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hún hefur verið rænt og í fyrra skiptið fengu ræningjarnir ps3 og flakkara.

Þið þurfið samt ekki að hafa neinar áhyggjur hún Sigga er að látta búa til fleiri diska svo það verði alveg pott þétt að 2 topps 3 diskar leynist nú í pakka hjá einnhverjum aumingja greyjum.

Tuesday, December 2, 2008

Braid



Þessi leikur kostar 1200 MS points sem er örugglega svona 100 þús kall íslenskar núna.
Þessi leikur átti fyrst að koma í PS3 store en þeir vildu hann ekki, hafa örugglega verið of upptekir að dást af PAIN


Einnhver leikjaland.is leikur til sölu. Sony í hnotskurn.

Braid er einstaklega Arty leikur einnhver ginger í jakkafötum hlaupandi um leitandi af einnhverjari prinsessu sem á að vera í einnhverjum kastala. Þetta er eiginlega alveg sama saga og í Mario nema aðalpersónan er bara betur klædd.



En síðan er líka einnhver Brún Barney mættur í staðinn fyrir sveppa.


Klassísk tónlist felur vel við útlitið sem lítur út fyrir að vera allt málað er alveg gullfallegt. Skemmtilegt líka hvernig tónlistinn og bakgrunnurinn hreyfist stundum með þér. Þar að segja ef þú bakara fer tónlistinn aftur á bak og bakgrunnurinn færist líka aftur.Leikurinn er skiptur upp í 5 heima, og þegar þú ert ekki upptekinn við að bjarga þessari prinsessu ertu að safna púslum, og geturðu sett þau saman þegar þú ert staddur á vissum stað í hverjum heimi.

En þetta er fyrstu og fremst þrautaleikur alveg ólíkt Mario og co. sem eru bara í því að hoppa.

Fyrst þegar ég spilaði þennan leik myndi hann mig reyndar rosalega mikið á Rick Dangerous.Alltaf klifrandi upp stiga og ofvaxnar byssukúlur.


Ég varð samt fljót leiður á þessum leik aðalega þá út af því hversu pirraður ég varð ef ég festist. Mjög vandaður leikur hérna á ferð og mæli ég með honum fyrir þá sem eru í vandræðum með MS punktana sína.

70% af 100%

Civilization Revolution

Suma leiki vill maður bara spila á PC með mús og lyklaborð. Leiki eins og ALLA herkænskuleiki og Football manager. Maður er bara eins og kloflaus portkona þegar maður spilar þessa leiki með stýripinna. Þess vegna var ég frekar efins þegar ég heyrði að það ætti að porta Civ leikina yfir á console vélar. En sem mikill civ aðdáandi varð ég að prufa, og satt best að segja er ég bara mjög sáttur, og rúmlega það.


Civ er náttúrlega alltaf sami leikurinn í grunninn, en Civ 4 var orðinn frekar huge leikur með miklu micro managementi. Sá vandi hefur verið leystur með því að strípa revolution leikinn töluvert niður, sem hefur bæði sína kosti og galla. Það sem pirraði mig mest er hvað diplomacy feature-inn er takmarkaður, og eiginlega alveg meingallaður. Það er t.d. alveg vonlaust að reyna að kúga eitthvað útúr andstæðingunum, en þeir reyna endalaust að kúga þig, jafnvel þó svo að þú eigir allar borgirnar í heiminum nema eina, og sért jafnvel búinn að núkka hann. Samt halda þessir bjánar áfram að hóta manni sem verður oft frekar pirrandi til lengdar.

Annað sem er freeeekar pirrandi eru ráðgjafarnir. Voða cute og skemmtilegt að hafa þá þarna flennistóra á skjánum, og eflaust eru þeir hjálplegir fyrir nooba, en af hverju þurfa þeir að tala sama mál og er talað í Sims leikjunum? Annað hvort tala ensku eða láta þá halda kjafti.


Heilt yfir er leikurinn samt brilliant. Fyrir tíma MMORPG leikjanna held ég að fáir leikir hafir stolið jafn miklum svefni og Civ leikirnir, og þessi fetar í fótspor þeirra. Það er hægt að dunda sér lengi í honum. Hann býður uppá margar mismundandi spilunarleiðir; nokkur scenarios, mismunandi victory types og 5 mismunandi erfiðleikastig, sem eru samt frekar gay.

Fyrstu tvö eru fáránlega létt og það ætti í raun enginn að spila þau nema a) aular, b) GS hunters, c) blanda af a og b. (Talandi um GS og Achievements þá er alveg shitload af skemmtilegum achievements í honum, bæði sem gefa fá gamer potins en tikka fljótt inn, en svo líka önnur sem krefjast þolinmæði, eins og að klára leikinn með öllum fucking þjóðunum, eða þau sem krefjast mikillar kænsku, eins og þau að vinna hverja sigurtýpu á deity difficulty.) Þriðja erfiðleikastigið, King, er fairly balanced, en samt um leið og maður nær tökum á leiknum verður það frekar easy. En svo ef þú skiptir yfir í 4. efsta breytist erfiðleikastigið úr "krefjandi" yfir í "ertu að djóka?"



Alls er hægt að spila með 16 mismunandi þjóðir, sem hver hefur sína kosti fram yfir hinar. Sumir kostirnir eru mjög léttvægir meðan aðrir eru á mörkum þess að vera svindl. Frakkar byrja með dómkirkju sem gerir það að verkum að ef maður byrjar við hliðina á þeim eru allar líkur á að þeir steli borginni manns útá culture. Rómverjar eru með afslátt af wonders og fá fleiri great people, þannig að ef þú lendir á móti þeim á king difficulty eða ofar eru allar líkur á að þeir rústi þér ef þú rústar þeim ekki strax. Persónulega fíla ég aztekana best, a.m.k. ef maður er gunning for domination victory, þeir heal-ast sjálfkrafa eftir hvern sigur í bardaga, sem gerir þá nánast ódrepandi.

Nokkrar þjóðir eru líka með "special units" sem er samt bara gabb, því það eru bara sömu units og hinar þjóðirnar, nema með sérsniðin nöfn eftir þjóðerni, vei, frábært.

Hingað til hefur Sid Meier ekki klikkað í Civ leikjunum, and once again he delivers.

Heildar einkunn:

85/100

(Reyndar er það þannig með Civ að annað hvort fílaru þá eða ekki, og ef þú ert í seinni hópnum finnst þér þessi leikur eflaust total sköll)

Monday, December 1, 2008

Zack and Miri Make a Porno.

Kevin Smith hefur gert eina góða mynd Clerks.

allt annað er


"Elska að þeir þurfi að hafa Kevin Smith í horninu, Enda eiga margir erfitt með að trúa því að hann hafi gert þennan viðbjóð"


Eða




"Þessi mynd er svo rosalega mikið að reyna að vera fyndinn. Óþolandi leikrara hver annar að reyna að troða sér inn í þessa missheppnuði mynd"



Zack and Miri er eiginlega bara "rómatísk gamanmynd" 2 topps 3 fyndnir brandarar í þessari mynd og þá oftast hjá honum Jeff Anderson. Eina góða við þessa mynd er eiginelga að fucking Ben Affleck er ekki í henni. Seth Rogan sem er í öllu þessa dagana eitthvað Ingvar E syndrome.
Og hvað er málið með gellurnar sem hann er að skvera í þessum myndum Katherine Heigl og Elizabeth Banks. Þegar ég sá hann fyrst var hann að leika í Freaks and Geeks og var hann að setja í píu þar sem var feit og með tippi. Talandi um tippi djö líst mér alltaf illa á það hvað er mikið af þeim í gaman myndum í dag t.d. í Forgetting Sarah Marshall og
Walk Hard: The Dewey COCK story. Hvað varð eiginlega um að hafa smá júllur og rottur í gamanmyndum eins og hérna í den "porkeys" og svona. Og þá svona alvöru 80´s júllur ekki rangeygðar siló júllur eins og þeim leiðist nú ekki að sýna í Zack and Miri.

30% af 100%

The Mutant Chronicles



Sá gagnrýni á þessari mynd einnhverstaðar og fyrirsögnin var
"Lord Of The Rings... In the future... With less walking. And story"
Og þá varð ég bara að sjá hana. Og ég varð ekki vonsvikinn af þessari ræmu. Komst reyndar að því eftir á að þessi mynd er byggð á RPG leik, Og er ég mjög fegin að ég vissi það ekki því þá hefði ég örugglega ekki haft áhuga á að horfa á hana. En leikarahópurinn í þessari mynd er án efa úr efstu skúffuni Ron "Hellboy" Pearlman mættur og Thomas "The Punisher" Jane. Síðan er engin annar en Malkovich í aukahlutverki.

En söguþráðurinn er frekar súr einnhver vél neðanjarðar sem býr til stökkbreytta uppvakninga eða eitthvað því um líka. Og ef þeir drepa þig draga þeir þig niður í vélina þar sem þú verður ein af þeim. Pearlman er munkur held ég eða prestur og safnar hann saman lið úrvals hermanna frá öllum heimsins hornum. Til að fara niður og slökkva á þessari maskínu. í þeim hópu eru men af öllum kynþáttum, Af einnhverji ástæðu deyr blökkumaðurinn samt fyrst aldrei séð það áður wink wink.
(p.s. er ekki að spoilera neinu þið vissuð þetta öll)

Mikið um blóð og limlestingar sem er alltaf jákvætt. Síðan auðvita heimsklassa leikur hjá Ron Pearlman alveg ótrúleg hvað svona ófríður maður getur leikið vel. Enginn nekt eða smá svona byrjun á rassakoru. sem er reyndar synd þar sem vinkona Rons Anna Walton er mjög vel sett saman og eflaust með afar þrýstin lítl falleg brjóst.

Snildar mynd í flest alla staði fyrir utan þetta Sky Captain and the World of Tomorrow look sem er yfir henni og er oftast yfir myndum sem eru allar teknar upp bara í einu grænu herbergi og nokkur kanski í grænri borðstofu ef eitthvað mikið er um að vera.


60% af 100%

Sunday, November 30, 2008

Casino Royal og Quantum of Solace

Casino Royal



Daniel Craig lítur út fyrir að hafa nefbrotnað allavega 3 sinnum og hann er með ljóst stutt hár og blá augu sem minna mann einstaklega á uppáhalds nazista hermann Hitlers. Síðan nær hann ekki einu sinni 1.80 á hæð. Einstaklega hallærislegur maður.
Þeir sem gerðu þessa mynd hafa augljóslega vitað það og ákveðið að vondi karlinn þyrfti að vera hallærislegri. Þannig að auðvita datt þeim í huga að finna einnhvern Dana. Því öllum er illa við þá og líta þeir út eins og aumingjar. Finna þeir Jesper Christensen en hafa þeir örugglega hugsað að hann væri of gamal og gæti því bara verið í aukahlutverki. En þar sem danir eiga nátturulega bara 5 leikara topps þurftu þeir að velja Mads Mikkelsen en hann er of ógnvegjandi enda vel kinnfiskbeinasoginn og með greitt í píku, Þannig að þeir ákveða bara að látta hann vera með asma og sé alltaf að nota púst.
Algjör þjáning að sjá Daniel Craig leika. Hefði heppnast betur að ráða gínu.
Það eina góða í þessari mynd er hann Mads. Síðan líka Caterina Murino sem er með brjóst og læti og hot í bikini á hestbaki. Eva Green er frekar hallærisleg og með litið andlit og alltaf vælandi.

20% af 100%


Quantum of Solace



Hmm Mads dauður og Jesper er enþá í framhaldinu. Þannig að Dönsku leikarnir eru ekki nema topps 1 eða 2 eftir og held ég að þeir séu að spara þá. En ég hugsa að aðal vondi karlinn í næstu mynd og aðal kingpinið yfir þessu "Quantum" samsteypu sé............

Jeg hedde Hvam. Frank Hvam.

Því hann er augjóslega sá eini sem gæti verið væskislegri en vondi karlinn í Quantum of Solace. Sem er Frakki og örugglega löggildur dvergur enda nær hann ekki 1.70. Og síðan til að toppa það er hans hægri hönd grindhoraður sláni sem er með skelfilega hárkollu og hálskraga hálfa myndina. Olga Kurylenko er ekkert að spóka sig á brókinni eða neit og er með ógeðslegt risa ör á bakinu.Í báðum þessar Daniel Craig er ekkert um nekt eða svona fluff eins og er klassískt í gömlu myndunum. Þó svo að maður viti alveg að hún Olga sé tilbúinn að fara á júllurnar og gerði það í Hitman. Og var það æðislegt enda æðisleg mynd.


Fann svo eina sem mér fannst svo skemmtileg verð að látta hana fylgja með.

uff nice.
Gemma Arterton er hin bondpían eða ætti ég kanski frekar að segja bondtelpan lítur út fyrir að vera svona 12 ára sem er frekar nasty :S

10% af 100%

My name is Bruce




Meistari Bruce Campbell mættur og leikur hann einstaklega missheppnaða útgáfu af sjálfum sér sem býr í hjólhýsi, og er að leika í framhaldi af mynd sem heitir Alien Cave 2 og er þá augljóslega verið að gera gis af myndina sem hann lék í 2005 Alien Apocalypse. Allt er að fara að annan endan greinilegt að þetta hefur verið áður en hann fékk hlutverk í Burn notice. Honum er síðan rænt af einnhverjum goth ungling sem er hans Numero uno fan. Tekur hann Bruce til smábæjar sem heitir Gold lick, en þessi goth unglingur er víst búinn að vekja japanskan stríðsguð sem gengur um allt og afhausar þorpsbúa.

Ted Raimi er í þessari mynd en og aftur og leikur hann 3 hlutverk. Verð að segja að hann er einstaklega ófyndinn og lélegur í þeim öllum. Bruce er mjög skondinn og tekur sig ekki alvarlega. Enda gerir þessi mynd mikið grín af B myndum en á samatíma veit hún það sjálf að hennar fyrsti og seinansti áfanga staður er videoleigan.

Brandararnir í þessari mynd eru ekkert sem maður hlær upphátt af meira svona glott.
Goreið er líka mjög cheap og alltaf þegar einnhver er drepinn hefur maður á tilfinninguna að sé verið að afhausa sömu brúðuna aftur og aftur. Sem reyndar gefur þessu sinn eigin sjarma.
Nektin er enginn í þessari mynd sem er mjög lélegt en aftur á móti er aðal mótleikona bruce með huge ass brjóst.

Í heildina er þetta bara mynd fyrir þá sem fíla Bruce Campbell og eiginlega enga aðra því þeir myndu bara finnast þetta sorp

40% af 100%

Friday, November 28, 2008

Gears of war 2: The Locusts Strikes Back

Gears of war 2 er kominn út og Marcus og co. eru mættir aftur.


Sagan er að mér finnst mun lélegri en í fyrri leiknum og gerist voðalega litið merkilegt.Eina sem er eitthvað áhugavert er þegar þeir byrja eitthvað að tala um faðir Marcusar sem átti víst að vera með eitthvað óhreint í pokahorninu. En ekkert verður úr því.Dominic er reyndar alltaf að leita er kerlinguni sinni. Sem hann finnur svo og er hún búinn að vera á ralli með locustunum 24/7 og lítur út eins og Amy Winehouse.

Borðinn eru samt öll mjög flott og fjölbreytilegt þó að sagan sé ekki upp á marga fiska.Sérstaklega þá borið sem maður er inn í risastórum ormi. En lenda þeir félagar inn í honum eftir að hann étur þyrluna sem er að reyna að bjarga þeim í heilulagi.Viss um að þeir hefðu alveg verið til í að hafa afnot af The millennium Falcon þá.

En já síðan eru 3 nýjir karakterar sem koma missmikið við sögu, sveitadurgur að nafni Dizzy og maður að nafni tai sem líkist óvenjulega mikið gaur úr Crackdown, getur samt ekki hoppað 5 falda hæð sína né lyft upp jeppa :S

Og síðan einnhver grind horaður locust með bob marley hár og keðjusög á löngu skafti, væri eflaust tilvalin í garðyrkju?
Síðan er það loka endakarlinn í leiknum en hann er alveg skelfilega léttur alveg sama þó maður sé á casual eða insane og minnir hann mig óendalega mikið á eitthvað annað skrímsli sem ég hef séð áður.


Multiplayerinn er mjög skemmtilegt eins og í gamla leiknum, nýju borðinn eru flest öll mjög skemmtileg sérstaklega þessi sem hafa augljóslega verið byggð á íslenskum aðstæðum t.d haglélið og snjóflóðaborðið.Nýju modeinn eru skemmtileg breytting eins og meatflak og king of the hill, Horde er líka skemmtilegt svona þangað til maður er búinn með það oftar en tvisvar upp í level 50. En það versta er, og það sem flestir voru að vonast eftir að myndi breytast er hverstu mikið forskot sá sem hostar leikinn hefur. Síðan er auðvita skelfilegur loading tíminn til að finna leik online. En þeir höfðu þá allavega match lobby þar sem maður getur safnað saman hóp eða party af félögum svo maður getur nú spjallað saman við í þennan hálftíma klukkutíma sem maður er að bíða eftir leik.

Vopnunum
hefur fjölgað smávegist og má þar nefna eldvörpu sem er skelfilega léleg en of svöl.

Minigun sem er eiginlega óstöðvandi ef maður er með hana uppstillta en hún virkar ekki eins vel ef maður er hlaupandi um með hana.

Mortor er voðalega eitthvað world war 2 vopn en það tekur dágóðan tíma að mastera það enda oft eftir að meta fjarlægt hlusta í tölvuleik.
Síðan er nýr hammerbust sem er mun betri og nákvæmnari en lancerinn, En aftur á móti er hún reyndar ekki með vélsög á.

Gæði þessa leiks eru auðvita það sem skarar framúr, þá er ég að tala um graffík hljóð og talsetningu sem eru öll á heimsmæli kvarða að mínu mati.

Heilar einkun

70% af 100%

The new pack in town.

First there was

The Rat Pack


then

The Brat Pack

and then

The Frat Pack

But now there is

Tuesday, September 2, 2008

How I met Siggeirs lookalike.

My friend Siggeir has a lookalike.
His name is Bill Parks.
Here are some pictures of Bill









And the here is his scene from the show How I met your mother episode 318


A picture of him putting out the cheese ? I think ?

........and everyone's home by 11, BOO-YA!

Sunday, August 24, 2008

The Dark Knight = Shit

WIN

WIN

FAIL


One deep voice motherfucker!!!


Ugly ass dog


Two-Face looks like something out of a school book.

Friday, August 15, 2008

The X Files: I Can´t to Believe Xzibit is in it.

Why is this man in this movie ? Who´s car did he pimp to be in it ?


Contributors